20%
Skip to product information
1 of 1

Scierra

Scierra Vöðlupakki - Scierra Yosemite Vöðlur - Scierra Force Vöðluskór

Verð 69.995 ISK
Verð 87.990 ISK Útsöluverð 69.995 ISK
-20% OFF
Með vsk. Shipping calculated at checkout.
Vöðlur
Skór

Scierra Yosemite

Vandaðar öndunarvöðlur með Ultra Sonic samsuðutækni í stað sauma. Lóðrétt skurðtækni sem auðveldar hreyfingu. Stillanleg axlabönd með smellum til að draga vöðlurnar niður að mitti á heitum dögum. Vatnsheldur innri vasi. Flís fóðraðir renndir handvermis vasar á hliðunum ásamt tveimur stórum lóðréttum renndum möskva vösum fyrir flugubox og tauma að framan. Neoprene mittisbelti með sérstökum bakstuðning og tveimur áföstum D lykkjum til að festa t.d. háf og silungapoka. Áfastar sandhlífar, 4,5mm Neoprene sokkar.

30.000 mm vatnsheldni ásamt 6.000 mvp öndun sem setur þær í hæsta gæðaflokk.

Scierra nelgdir Vöðluskór

Hrikalega öflugir og léttir skór sem veita góðan stuðning við öklann. Hægt er að fá skóna bæði með felt og gúmmí sóla.

Vatnsheldur geymslupoki með bakólum fylgir með undir vöðlur og skó.